22. ág. 2007
Ástfanginn
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Rétt fyrir 6 sótti ég Jóhann Inga upp í Gerðuberg. Keyrði vinkonu hans heim í Flúðasel, og fór svo niður á Hverfisgötu. Stansaði fyrir utan Nexus. Tók andköf þegar ég gekk inn og skimaði í kringum mig. Dýrðin var ólýsanleg, tilfinningarnar báru mig nærri því ofurliði. Heill veggur þakinn ævintýrabókum. Útópía í 101, Reykjavík. Gaf mér góðan tíma til að lesa titlana og nöfn höfundanna. Strauk varlega eftir kili bóka sem vöktu áhuga minn. Þegar Jóhann náði loksins að vekja mig af doðanum, hélt ég á Icewind Dale þríleiknum í annarri hönd, Legacy of the Drow í hinni. Gekk með dýrgripina að búðarborðinu, borgaði, þáði poka, og fór út. Ég sakna verslunarinnar nú þegar.
Þessi færsla hefur verið lesin 345 sinnum
22. ágúst 2007 kl. 20:58
Til hamingju
.. líka góðar bækur.
22. ágúst 2007 kl. 21:05
Hehe, sætt! Njóttu vel, þessi búð er yndisleg! Er ekki svo næsta þrep að sjá þessa mynd?
http://www.kvikmyndir.is/?mynd=astropia
22. ágúst 2007 kl. 21:11
Æi, ég veit það ekki. Íslenskar kvikmyndir höfða lítt til mín af einhverri dularfullri ástæðu. Líklega er Hollywood uppeldinu um að kenna.