Um kvöldmatarleytið í gær tók ég eftir því að einn þjónanna minna virtist látinn. Að minnsta kosti gagnagrunnsþjónninn. Reyndi SSH, án árangurs. Aðrar þjónustur voru virkar, s. s. DNS og póstur. Svo ég dreif mig af stað norður strax eftir vinnu í dag. Kominn heim, búinn að endurræsa þjóninn. Það fer ekki á milli mála að mér er ætlað að berjast við netþjóna á öllum vígstöðvum. Biðst velvirðingar á vandræðunum og töfinni. Góða helgi!