Þá eru nærri því þrjár vikur að baki í höfuðborginni og nýja starfinu. Búinn að koma mér ágætlega fyrir í Skógarhlíðinni og líkar vel. Er m. a. s. þegar búinn að ná 40 tímunum í þessari viku. Hugsa að ég taki svolitla skorpu í bílnum um helgina; þvo, pússa, bóna, skipta um bremsuljós, ryksuga, þurrka af, o. s. frv. Í versta falli geri ég ekkert af þessu.

Hjá Þjóðskrá er spennandi ferðalag framundan, þ. e. 10. nóvember. Gisting á fínu hóteli yfir nótt, heitir pottar, matur og aðrar veitingar. Er þó enn á báðum áttum hvort að ég eigi að fara. Það veltur allt á því hvort einhver skemmtileg og hugguleg skvísa vilji fara með mér. Látið mig vita fyrir 4. september. ;)