Ég hef verið að prófa mig örlítið áfram með að leggja af stað á mismunandi tímum í vinnuna. Úr Fífuseli í Skógarhlíð. Ef ég fer til dæmis af stað kl. 7:45, er ég mættur á slaginu 8:00. Eins ef ég legg af stað kl. 7:40. Umferðarþunginn er umtalsverður á þessum tíma, og megnið af tímanum fer í bið á ljósum, eða mjakast áfram í löngum bílalestum. Ef ég fer af stað kl. 7:30, tekur ferðin aðeins 10 mínútur, og ég er mættur kl. 7:40. Þá hef ég nægan tíma til að gæla við kaffivélina og yfirfara póst og fleira.
ágúst 2007
10 mínútur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Önnur vika
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Eftir afslappaða helgi á Akureyri sem einkenndist af leikjaspilun og kaffidrykkju, eru rafhlöðurnar fullhlaðnar og tilbúnar fyrir aðra vinnuviku. Gerði ýmsar spennandi uppgötvanir á föstudaginn sem munu líklega leiða mig í verslanir á borð við Nexus og BT á næstu dögum. Þegar ég lagði af stað frá Akureyri í gær, hugsaði ég með mér hve gaman væri að hafa ferðafélaga. Við afleggjarann til Dalvíkur áskotnaðist mér einn – hress og kátur Pólverji sem vantaði far til Reykjavíkur. Kunni eitthvað hrafl í íslensku, pilturinn, enda ljómaði hann af stolti þegar hann tók í höndina á mér og kynnti sig.
„Ég heiti Pétur. Where are you going?„
Norður í dag
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, GlensPrenta | Senda færslu | 7 athugasemdir
Með fyrstu vinnuvikuna að baki er ég ákveðinn í að „verðlauna„ mig með helgarferð til Akureyrar. Já, og hver veit nema ég bregði mér í kaffi til Dalvíkur, og líti við á Grenivíkurgrillinu í leiðinni!
Á hippatímabilinu svonefnda gaf karlkyns blómabarn einni vinkonu sinni gallabuxur í jólagjöf. Þar sem þessi friðelskandi náungi vildi vera dálítið frumlegur hafði hann skrifað „gleðileg jól„ á aðra buxnaskálmina en „gleðilegt nýár„ á hina. Eftir að vinkonan hafði tekið upp gjöfina sendi hún gefandanum svohljóðandi kort:
„Kæri Óli. Vertu velkominn á milli jóla og nýárs. Þín Nína.„
Fyrsti dagurinn að baki hjá TMD. Hann fór þó aðeins í að koma sér sæmilega fyrir og heilsa vinnufélögunum. Líst ágætlega á þetta allt saman. Get þó ekki beðið eftir að fara aftur til Akureyrar, hvenær svo sem mér gefst færi á því næst.
Fiskidagurinn mikli
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Skrapp til Dalvíkur á föstudagskvöldið, og kom heim í gær. Einhvern veginn tókst mér að missa af flestum dagskrárliðum. Þó var heilmikil stemmning þarna og allt virtist ganga mjög vel. Deginum hef ég svo varið í að pakka niður fyrir suðurförina í dag. Alvara lífsins hefst svo á nýja vinnustaðnum í fyrramálið.