Úr léttlyndi í þunglyndi.
september 2007
Þyngdaraukning
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 6 athugasemdir
Óvenjulegir dagar
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Mikið um akstur, bilanir og yfirvinnu. Bilanir leiðast mér, hitt er ágætt. Er að hugsa um að skrá aðsetur í Skógarhlíðinni, og halda lögheimilinu á Akureyri. Andagift og löngun til að skrifa eru farin í vetrarfrí.
Von um betri tíð
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Ég vona að næstu dagar og vikur verði lítið eitt rólegri. Nóg hefur dunið á upp á síðkastið. Svo er það enn ein ferðin suður í dag. Annars lauk ég við fyrstu bók þríleiksins um Icewind Dale um helgina. Nokkuð ánægður með söguna, þó sumt væri heldur snubbótt. Líkt og þessi færsla.
Keyrsla
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækni, Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Hvar á ég að byrja? Líklega sunnudaginn 16. september. Lesa meira af „Keyrsla“
Þreyttur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Ljómandi skemmtileg helgi. Skipti út móðurborðinu og tilheyrandi í Niflheim, en gat ekki kveikt á henni fyrr en á laugardag. Til þess vantaði mig breytistykki úr 20 í 24 pinna ATX straumtengi. Eftir það gekk allt eins og í sögu. Tók svo leifarnar og smellti í Clio turninn sem mér áskotnaðist helgina áður, en aftur lenti ég í vandræðum með straumtengi. Í þetta sinn dugir þó ekkert minna en nýr aflgjafi.
Laugardagurinn var með betra móti, þó Jan fengi ekki útivistarleyfi. Þess í stað var borðað á Glerártorgi, ekið um bæinn, og litið á jólahúsið í Hrafnagili. Sunnudeginum sló ég upp í fullkomið kæruleysi. Fór frá Akureyri kl. 3 í nótt, og mætti 7:30 í vinnuna. Veglykillinn brást í Hvalfjarðagöngunum, hvernig sem á því stendur. Líklega vissara að hringja í kvikindin á eftir til að koma í veg fyrir sektir og svoleiðis rugl.
Held að ég fari snemma í háttinn í kvöld. Mjög snemma.