Ljómandi skemmtileg helgi. Skipti út móðurborðinu og tilheyrandi í Niflheim, en gat ekki kveikt á henni fyrr en á laugardag. Til þess vantaði mig breytistykki úr 20 í 24 pinna ATX straumtengi. Eftir það gekk allt eins og í sögu. Tók svo leifarnar og smellti í Clio turninn sem mér áskotnaðist helgina áður, en aftur lenti ég í vandræðum með straumtengi. Í þetta sinn dugir þó ekkert minna en nýr aflgjafi.

Laugardagurinn var með betra móti, þó Jan fengi ekki útivistarleyfi. Þess í stað var borðað á Glerártorgi, ekið um bæinn, og litið á jólahúsið í Hrafnagili. Sunnudeginum sló ég upp í fullkomið kæruleysi. Fór frá Akureyri kl. 3 í nótt, og mætti 7:30 í vinnuna. Veglykillinn brást í Hvalfjarðagöngunum, hvernig sem á því stendur. Líklega vissara að hringja í kvikindin á eftir til að koma í veg fyrir sektir og svoleiðis rugl.

Held að ég fari snemma í háttinn í kvöld. Mjög snemma.