14. sept. 2007
Í morgun var mér úthlutað nýrra BlackBerry tæki í vinnunni, mér til mikillar gleði. Græjur eru af hinu góða. Svo segja Pjúsarar, í það minnsta.
Á dögunum krækti ég mér svo í uppfærslutilboð frá Tölvutek, sem samanstóð af GA-MA69VM-S2 móðurborði, Sempron 3200+ 64-bit örgjörva, og 2 GB af OCZ DDR2 vinnsluminni. Síðar bætti ég við GeForce 8500 GT skjákorti frá Tölvubæ. Misnotaði mér gróflega hverskyns afslætti, og hagnaðist vel á.
Því hefur stefnan verið sett á Akureyri eftir vinnu, enn einu sinni. Sé fyrir mér að skipta út móðurborðinu í Niflheim (gestatölvunni), og hnoða nýjan Linux þjón saman úr hinum og þessum hlutum.
Þessi færsla hefur verið lesin 410 sinnum
12. sept. 2007
Eiginmaðurinn hafði legið meira og minna í dái í nokkra mánuði, en af og til komist til rænu. Eiginkonan var við sjúkrabeð mannsins upp á hvern einasta dag. Dag einn þegar eiginmaðurinn komst til meðvitundar um stund gaf hann konu sinni bendingu um að koma nær sér. Þegar hún hafði sest hjá honum hvíslaði hann að henni tárvotum augum:
„Veistu hvað?„
„Nei, hvað er það væni minn?„
„Þú hefur gengið gegnum öll erfiðleikatímabil lífs míns með mér,„ sagði hann, og þuldi svo:
„Þegar ég var rekinn varstu til staðar að styðja mig, þegar atvinnureksturinn misheppnaðist varstu stoð mín og stytta, þegar ég var skotinn varstu við hliðina á mér, þegar við töpuðum húsinu varstu á þínum stað og þegar heilsan fór að bila, varstu enn við hlið mér… Veistu hvað?„
„Nei, hvað, kæri minn?„ sagði hún brosandi um leið og hún fann hjarta sitt fyllast hlýju.
„Ég held að þú færir mér ógæfu…„
Þessi færsla hefur verið lesin 418 sinnum
12. sept. 2007
19:15 hringdi farsíminn í gær. Þá sat ég og naut nýrrar ýsu með kartöflum og smjöri. Kvenrödd tjáði mér að hún hringdi á vegum Gallup, og ég hefði lent í 1.200 manna úrtaki skoðanakönnunar um laun og kjör félagsmanna Rafiðnaðarsambands Íslands. Enn fremur að happdrættisvinningar yrðu fyrir fáeina sem svöruðu könnuninni. Lítt hrifinn af trufluninni, bauð ég henni að hringja síðar um kvöldið, upp úr 20:00 væri ágætt. Klukkutíma síðar hringdi aftur frá sama númeri, og þegar ég svaraði, var skellt á. Öðrum klukkutíma síðar endurtók sagan sig. Fannst nú fokið í flest skjól þegar jafnvel Gallup fólkið skellti símanum á mig.
Líklega hefur hún hringt í heimasímann á Akureyri, en símtöl í hann flytjast í farsímann eftir drjúga stund. Sennilega hefur sú stund reynst þolinmæði hennar um megn í annað og þriðja sinn.
Ætli úrkomuviðvörunin í gær hafi skelft einhverja svo að þeir hafi byrjað daginn á að kaupa sér gúmmíbáta og björgunarvesti? Ekki vanþörf á því hér, hvort eð er. Fyrir vikið er ég nokkuð ákveðinn í að fara aftur til Akureyrar á föstudaginn.
Þessi færsla hefur verið lesin 229 sinnum
11. sept. 2007
Vinnufélagi minn lét þennan ganga í dag. Vona að þagnarskyldan gildi ekki um brandara senda í tölvupósti… Lesa meira af „Mánuður framyfir„
Þessi færsla hefur verið lesin 297 sinnum
10. sept. 2007
Mér finnst engu líkara en mánaðamótin hafi verið í gær, þó er þriðjungur mánaðarins þegar að baki. Hugsa að ég þakki ágætu starfi það.
Líklega hef ég ímyndað mér að ég væri á batavegi á laugardaginn. Um 4 í morgun vaknaði ég við heiftarlegasta höfuðverk sem ég hef upplifað. Hann hefur fylgt mér eins og tryggur hundur í allan dag. Skömmu áður en ég hætti í vinnunni, bættust beinverkir við, hiti og hvaðeina. Ég tími ekki veikindadögunum, þá ætla ég að taka út í desember svo ég nái óslitnum jólum og áramótum á Akureyri. Lesa meira af „Tíminn flýgur„
Þessi færsla hefur verið lesin 249 sinnum