Virðulegur maður kemur inn á barinn á Sögu og pantar fjögur glös af XO koníaki. Þjónninn afgreiðir manninn strax og raðar glösunum snyrtilega á barborðið. Maðurinn sturtar í sig úr hverju glasinu á eftir öðru og er búinn með alla sjússanna áður en 5 mínútur eru liðnar.

Þjónninn segir í spurningartón: „Það er eins og þér liggi á.„

„Þér myndi líka liggja á ef þú værir með það sama og ég,„ sagði maðurinn.

„Hvað ertu eiginlega með?„ spurði þjónninn í samúðartón.

„Bara fimmtíu kall.„