26. okt. 2007
Ferðasalerni
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Átti leið um Holtavörðuheiðina fyrr í kvöld – raunar skömmu eftir að banaslys átti sér þar stað – varð næstum því fyrir sjúkrabílnum. Færðin var leiðinleg, flughálka svo bílarnir dönsuðu til og frá á veginum. Undarlegri þótti mér salernisskálin á miðju áningarsvæðinu við enda Langadals. Hvernig postulínið rataði þangað er mér með öllu óskiljanlegt. Myndavélasíminn er ekki upp á marga fiska, en reyndi þó að fanga þessa óvenjulegu sýn á mynd, í skini bílljósanna. Smella má á myndina til að sjá hana ögn stærri.
Þessi færsla hefur verið lesin 378 sinnum
26. október 2007 kl. 22:48
lol er þetta einhvað grín eða sástu þetta í alvegu?
26. október 2007 kl. 22:57
Ekkert grín. Tók myndina ekki síður til staðfestingar sögu minni. Sé aðeins eftir því að hafa ekki haft betri myndavél meðferðis.