29. okt. 2007
Undirbúningur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Þessir dagar munu fara í undirbúning fyrir náðarhöggið um næstu helgi. Á einhvern hátt get ég ímyndað mér tilfinningar þeirra er leiddir eru að gálganum, eða fram fyrir aftökusveit. Vissan er slík að annað kemst ekki að. Ákveðin sátt við sitt hlutskipti – en þó ekki. Uppgjöf? Það þýðir ekki að streitast á móti því óumflýjanlega. C’est la vie, segja Frakkar. Svona er lífið.
Þessi færsla hefur verið lesin 412 sinnum
1. nóvember 2007 kl. 10:49
það vantar nýt blogg takk fyrir ég er orðin leið á að lesa alltaf það sama siggi minn
1. nóvember 2007 kl. 11:09
Ja hérna og sei, sei!