nóvember 2007


Eiginmaðurinn segir við konuna sína:

„Ég þori að veðja að þú getur ekki sagt eitthvað við mig sem bæði gerir mig glaðan og dapran, í sömu setningunni.“

Konan hugsar sig um svolitla stund og segir svo:

„Þú ert með stærra typpi en bróðir þinn.“

Í gærkvöld ákvað ég að gera aðra tilraun með rúðuþurrkurnar, og prófa fleiri af þessum ótal stykkjum sem fylgdu til að festa þær. Eftir gætilegan samanburð við búnaðinn á gömlu þurrkunum, fann ég eitt álitlegt. Smellti því á þurrkuna, og viti menn! Það smellpassaði. Eftir það var leikur einn að skipta um hinar.

Nú kann ég að skipta um rúðuþurrkur og geislaspilara. Ætti kannski að leggja tölvurnar á hilluna og gerast bifvélavirki.

Rakst á þetta fyrir algera tilviljun. Tveir balletdansarar. Maðurinn hefur aðeins einn fótlegg, konan einn handlegg. Skoðið myndbandið.

Þetta er of skammarlegt til að deila því ekki með öðrum. Blátt áfram hlægilegt! Lesa meira af „Skömm“

… er líklega orðum ofaukið, en engu að síður stóð jólasveinninn sig vel á suðurleiðinni á sunnudagskvöld/nótt. Veður og færð var vægast sagt ömurleg, en það gerði ferðalagið aðeins meira spennandi. Eddi svaf nánast alla leiðina til Borgarness frá Víðigerði – áhyggjulausar hroturnar héldu mér vel vakandi.

Helgin fyrir norðan var fín sem fyrr, Róbert kom Passatinum heilum til síns heima. Eg bölvaði geislaspilaranum í jólasveininum sem spilar ekki MP3 diskana mína, alveg þar til ég dreif mig í Ásco og spurði þá álits. Þeir sérhæfa sig einmitt í öllu er tengist hljómtækjum í bílum. Fyrstu svörin voru á þessa leið:

„Heyrðu, mamma þín kom einmitt á þessum bíl í gær, og sagðist hafa troðið geisladisk á milli geislaspilarans og innréttingarinnar!“

Ég hélt nú ekki, og bað um tíma- og verðáætlun. Allt að tveir tímar, 15 til 20.000 kr. með efniskostnaði. Verðið á spilaranum sem ég ætlaði að setja í. Flýtti mér í burtu, fölur og fár yfir þessum móttökum. Í gærkvöld að loknu námskeiði settist ég út í bíl með skrúfjárn, reif innréttinguna í mælaborðinu á milli sætanna úr, Alpine geislaspilarann þar á eftir, tengdi nýja spilarann, prófaði, festi og gekk frá öllu. Á 45 mínútum. Á meðan ég var að ganga frá þessu, sá ég kunnuglegan kapal sem dinglaði laus, en hugsaði ekkert frekar út í það. Áttaði mig svo á því að það var útvarpsloftnetið þegar allt var komið á sinn stað. Því hef ég aðeins Bylgjuna og FM 957 núna. Ekkert Rondo eða RÚV. Ætti þó að gefast nægur tími til að bjarga því á næstu dögum. Helsti tímaþjófurinn, þ. e. a. s. CCNA námskeiðið, fellur niður á fimmtudaginn og næstu viku. Það gleður mitt illa hjarta.

Eftirfarandi síða »