… er líklega orðum ofaukið, en engu að síður stóð jólasveinninn sig vel á suðurleiðinni á sunnudagskvöld/nótt. Veður og færð var vægast sagt ömurleg, en það gerði ferðalagið aðeins meira spennandi. Eddi svaf nánast alla leiðina til Borgarness frá Víðigerði – áhyggjulausar hroturnar héldu mér vel vakandi.

Helgin fyrir norðan var fín sem fyrr, Róbert kom Passatinum heilum til síns heima. Eg bölvaði geislaspilaranum í jólasveininum sem spilar ekki MP3 diskana mína, alveg þar til ég dreif mig í Ásco og spurði þá álits. Þeir sérhæfa sig einmitt í öllu er tengist hljómtækjum í bílum. Fyrstu svörin voru á þessa leið:

„Heyrðu, mamma þín kom einmitt á þessum bíl í gær, og sagðist hafa troðið geisladisk á milli geislaspilarans og innréttingarinnar!„

Ég hélt nú ekki, og bað um tíma- og verðáætlun. Allt að tveir tímar, 15 til 20.000 kr. með efniskostnaði. Verðið á spilaranum sem ég ætlaði að setja í. Flýtti mér í burtu, fölur og fár yfir þessum móttökum. Í gærkvöld að loknu námskeiði settist ég út í bíl með skrúfjárn, reif innréttinguna í mælaborðinu á milli sætanna úr, Alpine geislaspilarann þar á eftir, tengdi nýja spilarann, prófaði, festi og gekk frá öllu. Á 45 mínútum. Á meðan ég var að ganga frá þessu, sá ég kunnuglegan kapal sem dinglaði laus, en hugsaði ekkert frekar út í það. Áttaði mig svo á því að það var útvarpsloftnetið þegar allt var komið á sinn stað. Því hef ég aðeins Bylgjuna og FM 957 núna. Ekkert Rondo eða RÚV. Ætti þó að gefast nægur tími til að bjarga því á næstu dögum. Helsti tímaþjófurinn, þ. e. a. s. CCNA námskeiðið, fellur niður á fimmtudaginn og næstu viku. Það gleður mitt illa hjarta.