Þetta er of skammarlegt til að deila því ekki með öðrum. Blátt áfram hlægilegt!

Það sem lærður bifvélavirki gat ekki leyst, sérþjálfaðir menn gætu á lengri tíma (gegn hroðalegri þóknun), leysti ég fljótt og nokkuð auðveldlega. Það var að skipta um geislaspilarann í jólasveininum. Í dag fór ég í Bílanaust, fullur sjálfstrausts, og fann umgang af rúðuþurrkum á bílinn. Reyndist nokkuð einfalt að taka aðra rúðuþurrkuna af að framan – en að setja nýja í staðinn? Eftir tuttugu mínútur gafst ég upp.

Síðan þá hef ég lesið nokkrar reynslusögur um menn sem geta tekið bílvélar sundur og sett þær saman aftur án nokkurra vandkvæða. Sömu menn stríða við sama vandamál og ég. Neyðarlegt, ekki satt?