Mig skortir orð til að lýsa sársaukanum.
nóvember 2007
Hryðjuverk
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Bílflutningar
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Lengri helgi en venjulega framundan á Akureyri. Fer á nýja torfærutröllinu eftir vinnu í dag. Í fyrstu vissi ég ekki hvernig ég ætti að koma Passatinum norður, en svo vildi svo vel til að Robbi og frú eru einnig á norðurleið í kvöld. Þau féllust á að koma greyinu norður fyrir mig. Búinn að ganga frá veglykilsmálum, þ. e. a. s. að fá nýjan lykil og skila þeim gamla inn vegna bílaskiptanna.
Á morgun verður Passatinn lagður inn til aðhlynningar eftir óhappavikuna miklu, en geri ráð fyrir að eyða kvöldinu í leiki og skemmtun með Jan. Laugardagurinn er enn óráðinn, og fyrri hluti sunnudags sömuleiðis.
Jepplingur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 13 athugasemdir
Ég er lítt gefinn fyrir skyndiákvarðanir að öllu jöfnu. Í dag tók ég þó eina, og ekki af minni gerðinni. Síðustu vikur hef ég velt fyrir mér að skipta um bíl. Í dag lét ég verða af því. Fór niður í B&L að Grjóthálsi, rak augun í föngulegan grip, prófaði, og keypti. Fyrir valinu varð Hyundai Santa Fe, árgerð 2005. Tvílitur, silfur/grár. Með eindæmum skemmtilegur í akstri. Kaupaukinn skemmdi ekki fyrir – 100.000 kr. gjafakort í Smáralind, og í fyrramálið fæ ég ný nagladekk undir hann. Hér er mynd af gripnum, stolin af vef B&L.
Stykkishólmur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Fimmtudagurinn samanstóð af vinnu, undirbúningi fyrir meiri vinnu, námskeiði, og þar fram eftir götunum. Á föstudagsmorgun var förinni heitið til Stykkishólms með sviss, upsa, og á þriðja tug IP síma. Með okkur Kollu og okkar farangri var bíllinn troðfullur.
Komumst áfallalaust til Stykkishólms í hádeginu. Vinnan sem á eftir fór gekk ekki eins greitt, vorum að til hálf fjögur eða svo. Að lokum hafðist þetta þó allt. Ákváðum að keyra aðra leið norður til Akureyrar. Fórum í gegnum Álftafjörðinn, og einhvern veginn enduðum við á Borðeyri í Hrútafirði. Þar sem Brú var næsti áningarstaður, fengum við okkur léttan kvöldverð þar. Ferðalagið sóttist vel. Náttúran í kringum Stykkishólm, einkum hraunin, fossar og ár á leiðinni frá Borgarnesi, sem og Álftafjörðurinn, hrifu okkur einstaklega. Myndavélin var, því miður, vant við látin.
Fréttamennska
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
In journalism, there has always been a tension between getting it first and getting it right.
– Ellen Goodman

