Norður í land
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Föstudagurinn leið sársaukalaust fyrir sig í vinnunni, síðasta símtalinu svaraði ég fyrir síðdegiskaffi. Færði vinnufélögunum kort og kveðjur, og kvaddi alla með kurt og pí. Í dag tókum við saman pakka og pinkla, og undirbjuggum ferðalagið til Akureyrar. Bíllinn var sæmilega troðinn þegar við renndum úr hlaði frá Fífuseli. Andartaks stopp í Kópavoginum, einskonar tilraun til að gera óvænt góðverk fyrir jólin. Móttökurnar voru ósköp hlýlegar, enda ekki við öðru að búast af öðrum eins öðlingum. Svo hófst ferðalagið norður. Höfðum stutta viðkomu í Borgarnesi til að sækja nokkra pakka handa Dalvíkingum, og örlítið lengra stopp í Langadal til að bókstaflega troðfylla bílinn af kössum og pokum. Jafnvel aftursætin voru svo troðin af dóti, að Halldór sat nánast undir hrúgunni.
Nú ætla ég að spjalla ögn við hann Ares litla. Hann hefur haldið rúminu volgu nær sleitulaust frá því ég yfirgaf hann síðast fyrir borgina.
23. desember 2007 kl. 17:05
Gleðileg jól. Hafið það sem allra best um jólin
24. desember 2007 kl. 2:20
Fá sendi ég jólakveðjur norður til ykkar. Reyniði að fitna eitthvað í jólaátinu.
24. desember 2007 kl. 20:37
gleiðileg jól og hafið það sem allra berst yfir hátiðinar kv við öll