Kári lætur ekki að sér hæða, síst af öllu hér í háborg roks og rigningar.
desember 2007
Íslenski vindpokinn
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir GlensPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Gærdagurinn byrjaði ekki nærri því eins vel og ég hafði séð fyrir mér. Verkefnin hrannast upp á meðan síminn rænir mann öllum vinnufrið og slítur daginn sundur. Þrátt fyrir ýmis klúður (yfirfarin og samþykkt af yfirmanninum!) er ég sæll og glaður. Einhvern veginn skríða hlutirnir alltaf saman aftur á endanum. Sem er vel.
Um kvöldið brugðum við Kolla okkur í betri sal Smárabíós á sýningu myndarinnar Hitman. Myndin kom mér þægilega á óvart, Timothy Olyphant skilaði hlutverkinu einstaklega vel.
Í dag, að vinnu lokinni, gekk ég á fund fjármálastjórans og undirritaði nýjan starfssamning. Nú er ég svo rækilega flæktur í net Þjóðskrár að ég á mér engrar undankomu auðið. Það er að sjálfsögðu hið besta mál. Starfið fjölbreytt, fólkið gott og skemmtilegt, kjörin fín og öryggið fullkomið. Þaðan í Fífuselið, og svo út á flugvöll með Kollu. Fluginu til Akureyrar seinkaði í tvígang, þó ekki nema um þrjú korter.
Förinni er svo heitið norður á bóginn að námskeiði loknu annað kvöld. Föstudagur er minn „Bjössadagur„, þ. e. a. s. frídagur í boði Björns Bjarnasonar. Bráðskemmtileg nafngift, ekki síður en hefð.
Bein leið
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 7 athugasemdir
Síðustu dagar hafa einkennst af gríðarlegum vangaveltum og innkaupum. Vangavelturnar komu í kjölfar atvinnutilboðs frá EJS á Akureyri. Í dag skýrði ég loks frá endanlegri ákvörðun minni, og tók boði Þjóðskrár um fastráðningu. Gleði allra er að komu virtist einlæg.
Á þriðjudagsmorgunn í síðustu viku sótti ég Kollu í vinnuna. Þar varð fyrir á vegi mínum gamall vinur, Kristinn G. Jóhannsson. Einkar ánægjulegir endurfundir. Þrjú fórum við frá versluninni, Halldór, Kolla og ég, og sóttum fjórða og síðasta farþegann. Eddi var furðu sprækur svo árla morguns. Ferðin suður gekk vel að venju. Dreif mig beint í vinnu eftir að aðrir farþegar voru komnir í hús. Að öðru leyti leið vikan svo að segja tíðindalaust. Skrapp með Kollu í stuttan verslunarleiðangur á föstudagskvöldið, svona rétt til að hita gjafakortið upp fyrir helgina. Á sunnudag voru allar gjafir keyptar, og Kolla pakkaði inn og skrifaði á kortin á mettíma um kvöldið. Afbragðsgóður árangur fyrir mig, þar sem ég hef iðulega verið í seinna lagi með jólainnkaupin.
Vinna þessa viku, norður á föstudag, vinna næstu viku, aftur norður þann 21. desember, og þar ætla ég að reyna að halda mig til 31. desembers. Já, og ef ég man rétt, lýkur CCNA námskeiðinu á fimmtudaginn. Húrra!
Útvarp
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Elsti og yngsti strumpur lögðu af stað ferðaglaðir frá höfuðborginni fljótlega upp úr 4 í gærdag, stöldruðu við í Borgarnesi og tóku upp annan farþega. Mér er ekki að fullu ljóst hvers vegna fólk fjargviðraðist svo yfir veðri og færð, mér fannst heldur lítið til gjólunnar koma eftir ferðalagið suður síðasta sunnudag. Það var ekki fyrr en á Öxnadalsheiðinni sem eitthvað var hægt að setja út á – hríðarkóf og rok, jeppi álpaðist út af (óskemmdur, engin meiðsl), og aðrir óku um á 5 til 30 kílómetra hraða með neyðarljósin á. Staðarskálaborgarinn var ágætur, nema hvað ég gaf starfsfólkinu heldur flóknar leiðbeiningar sem ógjörlegt reyndist að framfylgja: „Enga sósu!„
Sótti Kollu í vinnuna í morgun, lagði mig í smá stund, heimsótti Beyja, reif allt úr bílnum aftur, tengdi útvarpsloftnetið og gekk frá. Sé fram á skemmtilegri daga á leið í og úr vinnu. Ekkert toppar Rondo á þessum ferðalögum!
