12. september, stundvíslega kl. 4, glumdi vekjaraklukkan; okkur Kollu til lítillar ánægju. Við fórum fremur seint í háttinn kvöldið áður. Eftir svolítið uml, sem snögglega breyttist í hljóðlátt bölv og ragn, slökkti ég á kvikindinu og kom mér á fætur. Kláruðum að ganga frá og yfirfara innihaldið í töskunum okkar, sem voru ósköp litlar og nettar. Lítill farangur fyrir stutta dvöl! Lesa meira af „París – á útleið„
2008
París – á útleið
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Allt í plati
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Engin færsla frá því fyrir Parísarferðina í september. Skammarleg frammistaða, án þess að ég hafi fleiri orð um það. Fyrr eða síðar hripa ég ferðasöguna niður. Eins mun ég eflaust reyna að skrifa eitthvað um haustferð Þjóðskrár.
Síðustu vikur hafa þó verið með óvenjulegra móti, einkum í vinnunni. Mikil skipulags- og þróunarvinna. Ég er enn að reyna að átta mig á því hvort ég vilji virkilega ganga funda- og skipulagsleiðina. Mín reynsla er a. m. k. sú að fundir eru hentugir fyrir blundi; sem og að ákveða hvar og hvenær næst skuli funda.
Þessi færsla er ekki síður til þess ætluð að minna mig á að hrista af mér bloggslenið, en að láta þá fáu sem ennþá ramba hingað inn með óreglulegu millibili, vita að ég dragi enn andann (og blási frá mér, ef út í það er farið).
Niðurtalning
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Það styttist óðum í Parísarferðina. Brottför kl. 7:40 í fyrramálið. Á fætur klukkan 4, og mæting á völlinn 5:40. Ég er búinn að innrita okkur íflugið á vef Icelandair, sem reyndist afar einfalt. Nú er aðeins spurning hvort allt annað verði eins einfalt.
Það ætlar þó að reynast öllu erfiðara að staðfesta kvöldsiglinguna okkar hjá Viator. Fyrr í vikunni hringdi ég út til að staðfesta ferðina, og það var ekkert mál. Var þó beðinn um að hringja aftur í gær til að endurtaka staðfestinguna. Það dróst til dagsins í dag. Þó fór svo að stúlkan þóttist ekki finna bókunina okkar í kerfinu, og vildi fá miðann sendan með faxi eða bréfpósti. Ég benti henni á að við færum í fyrramálið, og því kæmi bréfpóstur ekki til greina. Þá benti hún mér á að senda þetta frá hótelinu. Vonandi dugir það til.
Að lokum… Góða helgi!
Annasamur dagur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Símtólið vék naumast frá eyranu meirihluta dagsins, og tölvupóstsamskipti voru í algleymingi. Þó tókst mér að troða tveimur stuttum ferðum inn í daginn, annarsvegar með pappíra í banka, hinsvegar til að fækka hárunum á höfðinu.
Róleg og ágæt helgi að baki, sem einkenndist af látleysi. Við fórum naumast út fyrir hússins dyr, heldur lágum í leti og afslöppun. Það var þó kærkomin tilbreyting þegar Oliver og Sigrún litu inn í kaffi og köku á laugardagskvöldinu. Gestakomur eru fátíðar á þessum bæ.
Í dag hringdi ég í Viator til að staðfesta siglinguna niður Signu. Það reyndist auðvelt, þó mér þætti ensk-franska viðmælandans eilítið torskilin. Mér til furðu var ég þó beðinn um að hringja eftir tvo daga til að staðfesta ferðina aftur.
Einhver hrekkjalómur hefur sent tengil í síðustu færslu mína inn á afþreyingarvefi B2 og Black. Fyrir vikið er nær stanslaus umferð á vefdagbókina. Nýi þjónninn virðist þó láta sér fátt um finnast, sem er að sjálfsögðu gleðiefni.
Gylfi Ægis hringdi í mig áðan til að bjóða mér eintak af nýja geisladiskinum hans, innihaldið „tuttugu rútulög sem allir þekkja„, eins og hann orðaði það. Sem ég þáði, líkt og aðra diska sem hann hefur gefið út. Annars var spjallið stutt í þetta sinn; kappinn var á kafi í textasmíðum um Breiðavíkurdrengina.
Róleg helgi að baki, fjögurra daga vinnuvika framundan, og flogið til Parísar eldsnemma á föstudagsmorgunn.