Viftureiminn í Santanum hefur angrað mig nær látlaust frá því ég keyrði bílinn af bílasölunni og heim í fyrsta skiptið. Fór þó ekki að bera almennilega á þessu fyrr en kólnaði meira í veðri. Ískur, væl og einskonar gúmmílykt. Til marks um hve grænn ég er, þá hvarflaði ekki að mér að leita til bílasölunnar fyrr en í morgun, en Jóhannes taldi að þetta hlyti að vera á þeirra ábyrgð. Nú, það reyndist rétt, og sveinki fékk tíma á föstudaginn, og ég fæ hann svo aftur á laugardaginn. Stúlkan sem ég ræddi við á verkstæði B&L hræddi mig þó ögn, því hún áleit að kominn væri tími á skipti um tímareim líka. Í rétt um 78 þúsund kílómetrum! Ætli það sé þá einnig á þeirra ábyrgð?
janúar 2008
Jólasveinninn
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Hrun
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Góðu gamni lauk á hrottafenginn hátt á laugardagskvöldið. Jan og ég sátum að leik um miðnætti þegar við urðum þess varir að aðalþjónninn hafði gefið upp öndina. Við tóku strangar og hraðar æfingar, með skrúfjárn og ryksugu að vopni. Reyndum að blása lífi í greyið, án árangurs. Veit enn ekki fyrir víst hvað hefur gefið sig, en hef grun um að það sé örgjörvinn eða móðurborðið. Önnur tölva var því sett í hlutverk hins látna, heilinn fluttur á milli, og beðið innilega til tækniguðanna.
Komst að því að sérbyggði Linux kjarninn úr gamla þjóninum var ekki allskostar sáttur við sitt nýja umhverfi, enda gríðarlegur munur á AMD og Intel! Dagurinn í dag hefur því farið í fleiri æfingar, og loks nú, 26 tímum síðar, virðist allt vera komið í þokkalegt horf. Hver segir svo að helgarfríin séu tekin út með sældinni?
Ferðahamur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Held að ég hafi slegið öll met í viðbragðstíma og fjölda leystra verkefna í dag. Svo duglegur að ég ákvað að leyfa mér örlítinn munað og taka frí á föstudag. Því verður brunað af stað til Akureyrar að loknum vinnudegi á morgun. Alsæla! Einskær hamingja og gleði! Það verður notalegt að komast á skafnar og sandbornar götur, burt frá saltpæklinum í Reykjavík… Er þess nokkuð viss að ég fari með lítra af rúðuvökva á viku um þessar mundir. Þá gefst mér líka vonandi einhver tími til almennilegra tilrauna með nýju myndavélinni.
Vogarvandræði
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Veislurnar og átið síðustu vikur hafa dregið óvæntan dilk á eftir sér. Í gær ætlaði ég að stíga upp á baðvogina, en greyið skalf og nötraði af skelfingu, og reyndi að mjaka sér aftur undir borð. Spurning um að reyna að lokka hana undan borðinu með kálblöðum og gulrótum og fögrum loforðum?
Akureyri
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Þetta gleður.