22. jan. 2008
Vogarvandræði
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Veislurnar og átið síðustu vikur hafa dregið óvæntan dilk á eftir sér. Í gær ætlaði ég að stíga upp á baðvogina, en greyið skalf og nötraði af skelfingu, og reyndi að mjaka sér aftur undir borð. Spurning um að reyna að lokka hana undan borðinu með kálblöðum og gulrótum og fögrum loforðum?
Þessi færsla hefur verið lesin 310 sinnum
22. janúar 2008 kl. 10:25
Hvaða hvaða, þú átt nú langt í land til þess að láta baðvogina skjálfa úr hræðslu við „þyngdina„ þína, þú ert nú í svipuðu ástandi og ég og mín tekur valla eftir að ég stíg á hana.
22. janúar 2008 kl. 10:42
Trúðu mér, ástandið er verra en þig grunar. Þú hefur jú ekki séð mig síðan á milli jóla og nýárs.
22. janúar 2008 kl. 20:11
Það er bara vont fyrst, sagði músin!
23. janúar 2008 kl. 8:20
Það er svo sem ekki alveg ónýtt að eiga áfastan björgunarhring lendi maður í sjávarháska.
23. janúar 2008 kl. 15:34
Já það er satt, en ég læt mig þá bara berast með vindinum.