23. jan. 2008
Ferðahamur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Held að ég hafi slegið öll met í viðbragðstíma og fjölda leystra verkefna í dag. Svo duglegur að ég ákvað að leyfa mér örlítinn munað og taka frí á föstudag. Því verður brunað af stað til Akureyrar að loknum vinnudegi á morgun. Alsæla! Einskær hamingja og gleði! Það verður notalegt að komast á skafnar og sandbornar götur, burt frá saltpæklinum í Reykjavík… Er þess nokkuð viss að ég fari með lítra af rúðuvökva á viku um þessar mundir. Þá gefst mér líka vonandi einhver tími til almennilegra tilrauna með nýju myndavélinni.
Þessi færsla hefur verið lesin 354 sinnum
25. janúar 2008 kl. 12:10
Bjór skerpir athygli fram að vissu marki…
25. janúar 2008 kl. 12:59
já helvítis árátta að vera að slata göturnar hérna. Væri sáttari með sandburðinn hér syðra