Viftureiminn í Santanum hefur angrað mig nær látlaust frá því ég keyrði bílinn af bílasölunni og heim í fyrsta skiptið. Fór þó ekki að bera almennilega á þessu fyrr en kólnaði meira í veðri. Ískur, væl og einskonar gúmmílykt. Til marks um hve grænn ég er, þá hvarflaði ekki að mér að leita til bílasölunnar fyrr en í morgun, en Jóhannes taldi að þetta hlyti að vera á þeirra ábyrgð. Nú, það reyndist rétt, og sveinki fékk tíma á föstudaginn, og ég fæ hann svo aftur á laugardaginn. Stúlkan sem ég ræddi við á verkstæði B&L hræddi mig þó ögn, því hún áleit að kominn væri tími á skipti um tímareim líka. Í rétt um 78 þúsund kílómetrum! Ætli það sé þá einnig á þeirra ábyrgð? :D