Rauð Þjóðskrá
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Í dag er tiltektardagur. Starfsfólk Þjóðskrár sér rautt. Ekki af illsku, en vegna hreingerningagallanna. Bolir, svo rauðir að jaðrar við hryðjuverk, með áletruninni Þjóðskrá – Þar sem lífið byrjar og endar, einkenna fólkið í dag. Við fengum líka ofsa fallega afþurrkunarklúta. Þeir eru grænir, e. t. v. örlítið blátt í þeim, og svo stífir að minn stendur upp á rönd á borðinu. Sem væri skiljanlegt ef ég væri búinn að renna honum yfir borð, hillur og skúffur í kringum mig. Hann er ónotaður. Þetta var í glærum sellófan umbúðum á borðinu mínu í morgun. Ásamt poka af brjóstsykri; Anna og Claras håndlavede bolsjer. Ekki amaleg byrjun á deginum að eignast flík og sælgæti. Þessu fylgir hádegismatur með fólkinu niður í Borgartúni, sem og kvöldmatur og skemmtiatriði að loknum vinnudegi. Þá á ég bara eftir að keyra norður í kvöld.
1. mars 2008 kl. 21:21
Ég vissi ekki hvað mig stóð í veðrið í gærkveldi – hélt eitt andartak að ég hefði ruglast á hæðum!
…það verður fróðlegt a sjá hversu lengi þetta helst svona
3. mars 2008 kl. 8:06
Einmitt. Ég skáskaut mér af gömlum vana á milli ímyndaðra kassa og tölvuíhluta í morgun þegar ég mætti.