Greiðslumat og tæknin
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Á dögunum gekkst ég undir greiðslumat hjá Glitni, svona nánast að gamni mínu. Bæði langaði mig til að safna ákveðnum skuldum undir einn og sama hatt, eins langaði mig til að vita hvaða upphæðir væru notaðar við útreikninga hjá einstaklingi. Illu heilli fékk ég ekki að halda eftir afriti af niðurstöðunum, svo þær tölur eru að mestu gleymdar. Skemmtilegast, kannski örlítið óhugnanlegt um leið, fannst mér að geta safnað saman og sent allar nauðsynlegar upplýsingar til þjónustufulltrúans rafrænt.
- Staðfest afrit af skattframtölum fyrri ára má nálgast á vefnum skattur.is.
- Launaseðlarnir mínir eru sendir í heimabankann minn hjá Glitni.
- Yfirlit bílasamninga má fá sent rafrænt frá a. m. k. Lýsingu og SP-Fjármögnun.
Ég sótti skemmtilegt forrit að nafni PDFCreator á dögunum. Það kostar ekki krónu, og er frjáls hugbúnaður (GPL). Þegar uppsetningunni er lokið (smella nokkrum sinnum á Next og OK) verður til einskonar prentari á tölvunni, sem má velja þegar prenta á út einhver skjöl. Þessi „prentari„ skilar gögnunum út í PDF sniði, í stað þess að prenta út á raunverulegan pappír. Skjölin má svo senda með tölvupósti eða hvað svo sem hentar hverju sinni. Án þessa hefði ég eytt ófáum krónum í snatt um bæinn, til þess eins að fá útprentuð eintök af þeim upplýsingum sem mig skorti.
Á þriðjudaginn fylgdist ég með innistæðunni á gjaldeyrisreikningnum í heimabankanum hækka og lækka í sífellu. Gjaldmiðillinn eru evrur. Mesti munurinn var ríflega hundrað krónur, á aðeins 65,33 evrum. Bílasamningurinn á jólasveininum hefur hækkað um rúmlega 240.000 kr. frá því um áramót. Hvenær ætli við förum að aka peningunum á undan okkur í hjólbörum til þess eins að versla helgarmatinn? Og þó… Líklega sleppur það til vegna notkunar greiðslukorta í stað seðla.
22. mars 2008 kl. 7:50
Á dögum Hitlers í Þýskalandi var svo komið fyrir þýska markinu að fólk ók seðlum í hjólbörum til að gera innkaup. Vonandi verður ekki farið þannig með íslensku krónuna.
Þar fyrir utan, gleðilega páskahátíð til þín og þinna.
22. mars 2008 kl. 12:16
Þangað sótti ég einmitt þessa hugmynd.
Kærar þakkir og sömuleiðis.