Þrátt fyrir að ég sé farinn að komast flestra minna leiða hnökralaust hér í borginni, eru margir vegir enn órannsakaðir. Kortin á ja.is hafa tvímælalaust reynst mér vel, en stundum eru þau full ruglingsleg eða ónákvæm. Því lét ég undan þrýstingi vinnufélaganna sem gera óspart grín að „týnda Agureyringnum„, þó vissulega hafi dregið úr slíkum skotum eftir því sem ég keyri meira um. ;)

Dreif mig í Elko í Smáranum í morgun í leit að GPS staðsetningartæki. Eftir ágæta umsögn og dóma var ég nokkuð öruggur um hvað ég vildi. Garmin Nüvi 200W varð fyrir valinu, og að sjálfsögðu Íslandskortið líka. Ég var ekki seinn að koma apparatinu í gang og hlaða kortinu inn. Það flóknasta við ferlið fannst mér ruglingsleg aflæsing Íslandskortsins. Þeir gætu bætt sig ögn þar, blessaðir. Nú er tækið komið í bílinn, þægilega staðsett ofan á mæliborðinu. Fyrsta tilraunin var að stimpla inn vinnustaðinn. Leiðin reyndist sú sama og ég keyri alla daga, að því undanskildu að beygt var inn í Skógarhlíð af gatnamótum Bústaða- og Flugvallavegar. Ég kýs þó jafnan að beygja aðeins fyrr, inn á planið hjá Shell, svo til vinstri, inn á bakvið bygginguna.

Aðeins eitt sem mér finnst svolítið óþægilegt við gripinn, en það er „abcd„ uppröðunin á lyklaborðinu í valmyndum, í stað QWERTY. Ætti þó að venjast nokkuð fljótt. Það verður gaman að vita hvernig tækið virkar þegar á reynir.