Gripurinn hefur reynst vel þessa stuttu stund sem það hefur verið í notkun. Við erum oftast sammála um leiðir, þó ég þekki orðið ýmsar styttri eða fljótlegri leiðir sem ekki eru inn á kortinu. En það er lítið í samanburði við allt hitt sem það hefur upp á að bjóða. Verst þótti mér sú uppgötvun að það geymir enga sögu um hvert það hefur ferðast. Önnur helsta ástæða kaupanna var einmitt sú að ég vildi geta geymt og séð nákvæmlega hvaða leiðir ég hefði ekið, einkum þar sem ætlunin er að fara að ferðast ögn meira um landið þegar færi gefast. Því ætla ég að finna gripnum nýjan eiganda, og finna sjálfum mér 276C í staðinn.

Garmurinn kom að ágætum notum í gær, eftir Kringluferð okkar Kollu. Í gríni stakk ég upp á að við færum að Gullfossi, en þangað hef ég aldrei komið. Ókum Hellisheiðina austur eftir, en Þrengslin til baka. Að Gullfossi var tækið stillt á að vísa fljótlegustu leiðina, en þá keyrðum við drjúgan spotta eftir malarvegum. Til Reykjavíkur stillti ég tækið á stystu leið, og þá voru skyndilega engir malarvegir. Einmitt þess vegna hefði ég gjarnan viljað sjá á kortinu hvaða leiðir við höfum farið.

Annars var ég feikna duglegur í gærmorgun. Skrúbbaði jólasveininn hátt og lágt, tjöruhreinsaði og sápuþvoði. Svo festi ég vindhlífar yfir fremri hliðarrúðurnar. Nú sé ég aðeins eftir því að hafa ekki bónað fákinn í leiðinni, fyrst hann var orðinn svo hreinn og fínn. Róm var heldur ekki byggð á einum degi. ;)