25. apríl 2008
Fámennt hefur verið á vinnustaðnum þessa viku, einkum eftir þriðjudaginn. Þó sofnaði ég rólegur á þriðjudagskvöldið, vongóður um að næsti vinnudagur yrði í rólegri kantinum. Svo fór þó ekki. Þvert á móti ætlaði allt um koll að keyra. Það kvöld fór ég þreyttur – en ánægður með dagsverkið – í háttinn, fullviss þess að ég fengi að njóta fyrsta sumardagsins í ró og næði. Tvö útköll í gær, og ég sofnaði ekki fyrr en seint í nótt. Dagurinn í dag hefur ekki verið mikið betri, nema hvað flestöll vandamál eru úr sögunni.
Í hádeginu gaf ég mér þó tíma til að skreppa á útsöluna í Tölvutek. Bruðlaði mikið. Á þó von á endurgreiðslu frá þeim fyrir vöruskil frá því um daginn, svo það er strax örlítið skárra.
Ég get þó ekki annað en glaðst yfir hlýnandi lofti og fögrum dögum.
Í dag á pabbi líka fimmtugsafmæli. Ótrúlegt hvað tíminn æðir áfram.
Þessi færsla hefur verið lesin 485 sinnum
18. apríl 2008
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
WordPress
Prenta
|
Senda færslu
|
Ein athugasemd
Mitt fyrsta verk eftir lendinguna á Akureyri í kvöld var að uppfæra vefdagbækurnar okkar Kollu. Það gekk fljótt og sársaukalaust fyrir sig – það sem áður tók mig a. m. k. hálftíma og umtalsverða handavinnu. Síðast bjó ég þannig um hnútana að mínar breytingar og viðbætur þörfnuðust engra breytinga á sjálfu kerfinu. Íslenska þýðingu fékk ég frá Binna, en ekki alls fyrir löngu lauk hann við sömu uppfærslu og þýðingu á kerfinu.
Held að ég sé nokkuð ánægður með nýju útgáfuna. Mun þó eflaust taka einhvern tíma að venjast breytingunum, einkum í kerfisstjórninni. Nú er allt orðið miklu fínna og fallegra.
Að lokum, þá uppfærði ég kannanaviðbótina og lagaði smá galla sem kom í veg fyrir atkvæðagreiðslu. Gjörið svo vel og snæðið kjörseðlana eða nýtið þá að vild.
Þessi færsla hefur verið lesin 348 sinnum
14. apríl 2008
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
6 athugasemdir
Dagbókarskrif eru í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Þegar færi gefst, er engu líkara en allt stíflist og ekkert verður úr skrifum í það skiptið. Með hækkandi sól og hita er ég hræddur um að ástandið versni aðeins. Já, og talandi um sól, þá eru sumardekkin nánast í höfn. Fæ ný dekk í dag fyrir spottprís. Felgur er ég búinn að kaupa, en svo vel vildi til að dekkjaþjónusta N1 við Réttarháls átti „standard“ sett af lítið notuðum felgum – þ. e. a. s. sömu felgur og koma venjulega undir Santa Fe – sem ég fékk á 3.500 kr. stykkið. Á morgun ætla þeir svo að púsla skónum saman og setja þá undir Sveinka fyrir lítið. Ég er einstaklega ánægður með kaupin, enda sparast fleiri tugir þúsunda. Þó jafnast það líklega út í lok mánaðarins, a. m. k. ef bensíneyðslan minnkar ekki. Það sem af er þessa mánaðar hef ég keypt 221 lítra af bensíni, sem er að sjálfsögðu ekkert annað en vitfirring. Næsta fjárfesting verður líklega í hjólaskautum.
Þessi færsla hefur verið lesin 288 sinnum
7. apríl 2008
Við Kolla brunuðum norður á föstudaginn eftir vinnu, og vorum komin til Akureyrar á slaginu 21:00. Óvenju snemma, sum sé. Helgin fór svo nánast óskert í tölvuleikjaspilun í félagsskap Jans.
Uppfærsla í dag, þriðjudaginn 8. apríl: Bætti við korti sem sýnir leiðina og litla krókinn sem við tókum á sunnudaginn. Lesa meira af „Tilbreyting og dekur“
Þessi færsla hefur verið lesin 406 sinnum
7. apríl 2008
Nýr eigandi tók við Garminum á mánudaginn fyrir viku, og ég náði mér í annan til R. Sigmundsson. Ég komst þó hjá 276C gerðinni, og fann mér Nüvi 710 í staðinn. Ívið ódýrari og nettari. Hann er nánast nákvæmlega eins og 200W módelið, með ýmsum viðbótum þó. Mest af öllu saknaði ég þess að hafa ekki „tracking“, en nú er ég sáttur.
Þessi færsla hefur verið lesin 246 sinnum