Við Kolla brunuðum norður á föstudaginn eftir vinnu, og vorum komin til Akureyrar á slaginu 21:00. Óvenju snemma, sum sé. Helgin fór svo nánast óskert í tölvuleikjaspilun í félagsskap Jans.

Uppfærsla í dag, þriðjudaginn 8. apríl: Bætti við korti sem sýnir leiðina og litla krókinn sem við tókum á sunnudaginn.

Á suðurleið á sunnudaginn var stansað við Brú í Hrútafirði, kvöldmatur snæddur, og beygt lítið eitt af leið. Fórum aftur út fjörðinn framhjá Borðeyri, inn á Búðardalsafleggjarann. Sannkallaður fósturlátsvegur. Sveinki litli breyttist úr fögrum í forugan silfurfák á svipstundu. Komum niður Bröttubrekku inn í Borgarfjörðinn, svo áfram sem leiðin lá til Reykjavíkur. Í morgun ákvað ég að dekra við Sveinka fyrir meðferðina sem hann sætti í gærkvöld. Hringdi í AT Bíla og pantaði alþrif og djúphreinsun í fyrramálið handa greyinu. Ég vona að hann fyrirgefi mér fyrir vikið. Svo er ég að leita að nýjum skóm handa honum fyrir sumarið. Þá rann upp fyrir mér hve lítið ég veit um dekkjastærðir. Svo lítið að ég skammast mín.

AEY til RVK (6.4.2008)