7. apríl 2008
Vegvísir III (Finale)
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 5 athugasemdir
Nýr eigandi tók við Garminum á mánudaginn fyrir viku, og ég náði mér í annan til R. Sigmundsson. Ég komst þó hjá 276C gerðinni, og fann mér Nüvi 710 í staðinn. Ívið ódýrari og nettari. Hann er nánast nákvæmlega eins og 200W módelið, með ýmsum viðbótum þó. Mest af öllu saknaði ég þess að hafa ekki „tracking„, en nú er ég sáttur.
Þessi færsla hefur verið lesin 246 sinnum
8. apríl 2008 kl. 10:47
Þetta eru dásamleg tæki.
Ég fékk Nüvi 760 um jólin.
Svo stingur maður þessu í vasann erlendis
til að rata um borgirnar.
Komist maður þangað.
Til hamingju.
8. apríl 2008 kl. 19:18
Án alls vafa. Eins og þú orðaðir það í athugasemd við fyrri færslu, þá eru Garmarnir svo skemmtilegir að maður fer út að aka nær eingöngu fyrir þá. Þegar maður hefur safnað fyrir eldsneytinu.
Ég vona einmitt að ég geti látið reyna á gripinn utan landsteinanna í haust. Annars ætla ég að grípa hvert tækifæri til ferðalaga innanlands, svo langt sem Garmur og Sveinki leyfa.
8. apríl 2008 kl. 19:37
Já, það er sárara en tárum tekur,
verðið á eldsneytinu.
Þú mættir alveg setja mynd af Jólasveininum
í pistil. Það gæti svalað forvitni gamalla skrjóða.
8. apríl 2008 kl. 20:13
Sú var einmitt ætlunin, að taka fáeinar myndir af honum í veðurblíðunni að baði og bóni loknu. Strákarnir hjá AT bílum stóðu sig einstaklega vel, hefði ekki getað dekra meira við hann sjálfur. Þeir tóku líka minna fyrir verkið en aðrir sem ég athugaði.
Í þessari færslu má þó sjá sömu mynd af honum og var á vef bílasölunnar í haust. Stolin án nokkurs samviskubits.
9. apríl 2008 kl. 9:33
Það verður að játast, og ég roðna ofurlítið, að ekki mundi ég neitt eftir þessum færslum okkar frá í fyrra, með mynd af bílnum. En svona fer aldurinn með fólk. ,,Alsheimer light„ sagði konan í Sjóvá við mig í símann þegar ég mundi ekki nafnið á manninum sem ég þurfti að tala við. Lýsti bara útliti hans.