Nýir skór
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 6 athugasemdir
Dagbókarskrif eru í sögulegu lágmarki um þessar mundir. Þegar færi gefst, er engu líkara en allt stíflist og ekkert verður úr skrifum í það skiptið. Með hækkandi sól og hita er ég hræddur um að ástandið versni aðeins. Já, og talandi um sól, þá eru sumardekkin nánast í höfn. Fæ ný dekk í dag fyrir spottprís. Felgur er ég búinn að kaupa, en svo vel vildi til að dekkjaþjónusta N1 við Réttarháls átti „standard„ sett af lítið notuðum felgum – þ. e. a. s. sömu felgur og koma venjulega undir Santa Fe – sem ég fékk á 3.500 kr. stykkið. Á morgun ætla þeir svo að púsla skónum saman og setja þá undir Sveinka fyrir lítið. Ég er einstaklega ánægður með kaupin, enda sparast fleiri tugir þúsunda. Þó jafnast það líklega út í lok mánaðarins, a. m. k. ef bensíneyðslan minnkar ekki. Það sem af er þessa mánaðar hef ég keypt 221 lítra af bensíni, sem er að sjálfsögðu ekkert annað en vitfirring. Næsta fjárfesting verður líklega í hjólaskautum.
14. apríl 2008 kl. 13:56
Þú stefnir í 5.300 lítra á ársgrundvelli með þessu framhaldi
Er að gera talsvert betur en ég með mína „litlu„ 3.000 lítra í fyrra
14. apríl 2008 kl. 15:04
742.000 kr. í eldsneyti! Ég hugsa (og vona) þó að þetta verði ekki meðaltalið, þ. e. a. s. 100 lítrar á viku. Væri gaman að taka þetta allt saman til að sjá þróunina síðan ég kom til borgarinnar. Eða ekki.
14. apríl 2008 kl. 15:44
Er þetta ekki bara lausnin?
http://www.runyourcarwithwater.com/
15. apríl 2008 kl. 9:42
Ég asnaðist til að opna heimilisbókhaldsskrá frá 2002 og sá að þá kostaði lítrinn 96kr
En mjög vel sloppið með dekkjakaupin.
15. apríl 2008 kl. 14:27
Hugsa sér! Ekki heldur svo mörg ár síðan lítrinn var á bilinu 60 til 70 kr. Þegar ég fékk bílprófið 2004 var lítrinn á um 113 kr. á Select í Suðurfelli. Vonandi að þessi þróun fari að snúast við.
15. apríl 2008 kl. 14:54
Það eru engar líkur á því, því miður.