Erill
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Fámennt hefur verið á vinnustaðnum þessa viku, einkum eftir þriðjudaginn. Þó sofnaði ég rólegur á þriðjudagskvöldið, vongóður um að næsti vinnudagur yrði í rólegri kantinum. Svo fór þó ekki. Þvert á móti ætlaði allt um koll að keyra. Það kvöld fór ég þreyttur – en ánægður með dagsverkið – í háttinn, fullviss þess að ég fengi að njóta fyrsta sumardagsins í ró og næði. Tvö útköll í gær, og ég sofnaði ekki fyrr en seint í nótt. Dagurinn í dag hefur ekki verið mikið betri, nema hvað flestöll vandamál eru úr sögunni.
Í hádeginu gaf ég mér þó tíma til að skreppa á útsöluna í Tölvutek. Bruðlaði mikið. Á þó von á endurgreiðslu frá þeim fyrir vöruskil frá því um daginn, svo það er strax örlítið skárra.
Ég get þó ekki annað en glaðst yfir hlýnandi lofti og fögrum dögum.
Í dag á pabbi líka fimmtugsafmæli. Ótrúlegt hvað tíminn æðir áfram.