26. maí 2008
Skrapp austur á laugardagsmorgunn í nýbýli múttu og Jóhannesar til að flísaleggja. Gekk alveg bærilega, við kláruðum gólfin á þvottahúsinu, geymslunni, og eitthvað af eldhúsinu. Smá Evróvisjón teiti hjá Hugrúnu frænku, og aftur til borgarinnar um nóttina.
„Gamla settinu“ barst tilboð í Fífuselið í síðustu viku, skipti á minni íbúð í Bökkunum með milligjöf. Þá ætti að vera auðveldara að selja hana, enda mjög hentug fyrir búskaparbyrjendur. Nú stefnir allt í að þau flytji austur í Grímsnesið um mánaðamótin. Það er ekki verið að slóra í neinu hér!
Þetta setur okkur Kollu þó í svolitla klemmu; annaðhvort er að finna íbúð til leigu á mettíma (og viðráðanlegu verði), eða eyða meirihluta teknanna í akstur á milli vinnu og bústaðar. Á meðan njóta Akureyringar og Austfirðingar sólar og sumars.
Þessi færsla hefur verið lesin 379 sinnum
20. maí 2008
Gunni og Jói voru gamlir vinir, og á sínum yngri árum miklir boltamenn. Daglega settust þeir á bekk í lystigarðinum og ræddu um fótbolta á meðan þeir mötuðu fuglana á korni.
Dag einn spurði Gunni Jóa:
„Heyrðu, heldurðu að þeir spili fótbolta á himnum?“
Jói hugsaði sig um andartak, áður en hann svaraði: „Tja, nú veit ég ekki! Því gerum við ekki samning? Ef ég dey fyrst, skal ég koma til baka og segja þér hvort að þeir spili fótbolta þarna uppi, og þú gerir það sama ef þú kveður á undan. Samþykkt?“
„Já, það er ég sko til í!“ svaraði Gunni.
Aðeins fáeinum mánuðum síðar varð Gunni gamli bráðkvaddur. Jói hélt þó uppi sömu venju, og gaf fuglunum korn í garðinum. Í eitt skiptið, fáeinum dögum eftir jarðarförina, heyrist honum hvíslað:
„Jói! Jói!“
Jói svipaðist um en sá engan, og spurði því út í loftið:
„Ert þetta þú, Gunni?“
„Já,“ svaraði andi Gunna, og hélt svo áfram:
„Ég hef bæði góðar fréttir og slæmar. Þær góðu eru að við spilum fótbolta daglega á himnum. Þær slæmu eru að þú átt að vera í markinu á föstudaginn…“
Þessi færsla hefur verið lesin 259 sinnum
20. maí 2008
Konan mín hringdi í mig í gær og sagði að nú ætti hún sko skilið að ég færi með hana á virkilega dýran stað eftir vinnu.
Hún ætti það svo sannarlega skilið…
Svo ég fór með hana á bensínstöð!
Þessi færsla hefur verið lesin 130 sinnum
19. maí 2008
Fyrir mér hefur umtalsverð togstreita einkennt síðustu vikur. Ég er eins ánægður með starfið og ég er dapur yfir staðsetningunni. Heimaslóðir og vinnan takast á í nokkuð jöfnu reipitogi. Það er þó ekki í fyrsta sinn. Fyrir fjórum árum varði ég nærri því heilu ári í borginni vegna vinnu.
Ég held að sumum henti bara alls ekki að gera slíkar breytingar á heimahögum. Að minnsta kosti ekki mér. Borgin hefur vissulega eitthvað aðdráttarafl, þó ekki sé annað en fáeinir vinir og ættingjar, og örlítið meiri fjölbreytni í flestu. En ekkert jafnast á við Akureyri; útsýnið yfir fjörðinn, morgunsólin yfir Vaðlaheiðinni, á kvöldin yfir Hlíðarfjalli. Húsin við sjávarsíðuna í Hafnarstrætinu og innar sem endurspeglast í spegilsléttum Pollinum á kyrrum sumarkvöldum.
Það væri yndislegt að geta flutt vinnuna heim, heim til Akureyrar.
Þessi færsla hefur verið lesin 128 sinnum
14. maí 2008
Fífuselsbúar komu saman í kvöldsólinni til að þinga um bílageymsluna. Sumir ígrunduðu pappíra, aðrir skröfuðu um daginn og veginn, en einn stóð og horfði til himins í örvæntingu sinni. Sjá má stærri mynd með því að smella á þessa.

Þessi færsla hefur verið lesin 203 sinnum