Skrapp austur á laugardagsmorgunn í nýbýli múttu og Jóhannesar til að flísaleggja. Gekk alveg bærilega, við kláruðum gólfin á þvottahúsinu, geymslunni, og eitthvað af eldhúsinu. Smá Evróvisjón teiti hjá Hugrúnu frænku, og aftur til borgarinnar um nóttina.

„Gamla settinu„ barst tilboð í Fífuselið í síðustu viku, skipti á minni íbúð í Bökkunum með milligjöf. Þá ætti að vera auðveldara að selja hana, enda mjög hentug fyrir búskaparbyrjendur. Nú stefnir allt í að þau flytji austur í Grímsnesið um mánaðamótin. Það er ekki verið að slóra í neinu hér! ;)

Þetta setur okkur Kollu þó í svolitla klemmu; annaðhvort er að finna íbúð til leigu á mettíma (og viðráðanlegu verði), eða eyða meirihluta teknanna í akstur á milli vinnu og bústaðar. Á meðan njóta Akureyringar og Austfirðingar sólar og sumars.