maí 2008


Ég held að ég hafi ekkert stækkað, nema þá ögn á þverveginn eftir grillveisluna á laugardag. ;)

Síðustu daga hef ég gefið mér meiri tíma til bóklesturs en venjulega. Bækur R. A. Salvatore eru fyrirtaks afþreying. Þess á milli hef ég lítið eða ekkert gert utan þess hefðbundna; vinna, borða, sofa.

Á föstudaginn ætla ég að reyna að stelast norður á bóginn að vinnu lokinni, eiginlega eina tækifærið fyrir mánaðamótin. Annars virðist tíminn þjóta áfram í óljósri móðu um þessar mundir – vakna á mánudagsmorgni, og skyndilega er kominn sunnudagur!

Það er ekki ýkja langt síðan umræður áttu sér stað um notkun farsíma til að fylgjast með ferðum ungviðisins hér á Fróni, en með GPS staðsetningarbúnaði er það tiltölulega einfalt. Ég hef raunar ekkert heyrt af því um tíma, en var svo bent á tilbúna vefþjónustu sem gerir þetta fljótt og örugglega.

Á vef Track a Partner er nóg að slá inn farsímanúmer (landsnúmer á undan, t. d. 354xxxxxxx fyrir Ísland) og smella á leitarhnappinn. Þjónustan hefur umsvifalaust samband við gervihnetti, og eftir skamma stund byrjar hún að plotta staðsetningu viðkomandi símtækis á korti með ótrúlegri nákvæmni.

Það besta er að þetta kostar ekki svo mikið sem krónu! :)