Tíðindafátt
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Ein athugasemd
Sumir dagar líða hjá með hraði, aðrir virðast engan endi ætla að taka. Dagurinn í dag er einhversstaðar þar á milli.
Helgarnar hef ég notað í flísalagnir austur í Grímsnesi, virku dagana í dagvinnuna og bóklestur á kvöldin. Byrjaði nýverið á fyrstu bókinni um seiðkarlinn Elminster, The Making of a Mage, eftir Ed Greenwood. Persónurnar hans eru virkilega skemmtilegar, en ritstíllinn jafnast engan veginn á við R. A. Salvatore. Stundum hef ég virkilega þurft að einbeita mér að því að halda áfram, í stað þess að henda bókinni út í horn. Ég veit ekki hvenær ég varð svona vandlátur í garð bókmennta. Kannski hef ég alltaf verið það, óafvitandi.
Húsnæðismálin eru svolítið óljós um þessar mundir, en þó fer líklega svo að ég reyni að kaupa litla íbúð í borginni. Hef raunar augastað á einni snoturri í Breiðholtinu, Bökkunum nánar tiltekið. Hvað verður úr því er svo annað mál. Ég bíð í það minnsta þar til 1. júlí, þegar stimpilgjöldin verða afnumin af fyrstu kaupum. Það munar um minna!
Á morgun, að vinnu lokinni, er svo hin árlega (að mér skilst) sumarbústaðaferð Þjóðskrár – einmitt í Grímsnesið. Geri ráð fyrir góðum veitingum, ekki síður en félagsskap þar á bæ.
Þann 13. júní ætlum við Kolla svo að taka frí eftir heilan mánuð í borginni. Förum norður og njótum lífsins í heila viku. Ó, hve ég hlakka til!
5. febrúar 2012 kl. 9:22
Las alla færsluna, eingöngu til að kmoast að því sem síðasta setningin sagði mér. Ég get nú sætt mig við framhjáhaldið, en ef von er á stjúpbörnum í heiminn vil ég fá að vita það með smá fyrirvara. Gæti prjónað til dæmis.