Þjónustulund
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önn, Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 9 athugasemdir
Tölvutek er lítil og settleg tölvuvöruverslun. Starfsmennirnir þar eru ekki bara sölumenn. Þeir keppast ekki um að selja sem mest, heldur veita afbragðsgóða þjónustu. Það er í sjálfu sér nokkuð merkilegt, því flestar vörur sem ég kaupi af þeim, eru umtalsvert ódýrari en hjá öðrum sambærilegum verslunum. Ég sé þetta sífellt betur eftir því sem ég leita oftar til þeirra. Þjónustan verður persónulegri og nákvæmari með hverju skipti, því smátt og smátt læra þeir hvað viðskiptavinurinn vill.
Á þriðjudagsmorgun bað ég þá um tilboð í tölvu, íhluti sem ég var að mestu búinn að velja sjálfur. Þessi tölva á að leysa Vanaheim af, Linux netþjóninn sem hýsir meðal annars þessa vefdagbók. Sá er orðinn 10 ára gamall og farinn að kalka örlítið, en þó er merkilegt hvað hann stendur sig vel. Þetta útskýrði ég fyrir starfsmanni Tölvuteks, og bætti við að mér lægi svolítið á tölvunni þar sem ég færi norður á föstudaginn.
Ekki leið á löngu þar til ég fékk tilboðið, ítarlegt PDF skjal, í hendurnar, ásamt loforði um að gripurinn yrði til fyrir lokun verslunarinnar í dag, fimmtudaginn 12. júní. Í gær hringdu þeir í mig um hádegisbil, og buðust til að senda mér tölvuna, hún væri tilbúin. Ég kaus þó að sækja hana, enda stutt frá Skógarhlíð í Borgartún. Ég greiddi fyrir tölvuna, sem var svo borin út í bíl fyrir mig – þó ég veigraði mér ögn við og sagðist vel ráða við svo lítinn kassa án aðstoðar.
Í Skógarhlíð reif ég svo gripinn upp úr kassanum, setti í samband og ræsti. Allt var eins og það átti að vera – nema vinnsluminnið. Í tilboðinu voru 4 GB, í tölvunni aðeins 2 GB. Ég hringdi í strákana sem vildu þegar fá hana til baka til athugunar. Á meðan þeir sinntu tölvunni, þáði ég veitingar og skoðaði í hillurnar. Skömmu síðar fæ ég tölvuna aftur, með þeim skýringum að pakkinn utan um vinnsluminnið hafi verið vitlaust merktur. Í staðinn settu þeir vandaðri (og jafnframt dýrari) gerð af vinnsluminni í tölvuna, þó 4 GB í þetta sinn, einskonar sárabætur fyrir mistökin. Að lokum var mér réttur poki af sælgæti, og kvaddur með virktum.
Það sem ber af er hversu fljótt þeir afgreiða málin, allt frá tilboði til afhendingar. Viðurkenna mistök, leiðrétta, og bæta viðskiptavininum það upp eftir bestu getu. Allan tímann með bros á vör.
Þetta er alls ekkert einsdæmi í mínum kynnum af starfsfólki Tölvuteks. Þau vita nefnilega að ánægður viðskiptavinur er mun líklegri til að koma aftur. Það vita ekki allir, eða stendur svo á sama að þeir veita ekki eins góða þjónustu og þeir gætu.
12. júní 2008 kl. 9:53
Þetta er bara alveg skólabókardæmi um góða þjónustu! Frábært að heyra svona sögur. Þú vonandi hefur komið þessu áleiðis til þeirra líka
?
12. júní 2008 kl. 10:04
Að sjálfsögðu. Mér finnst nauðsynlegt að vekja athygli á svo góðri þjónustu.
12. júní 2008 kl. 10:08
Þetta er alvöru þjónusta!
12. júní 2008 kl. 15:54
Mann fer að dauðlanga að versla við piltana.
Reyni að muna það þegar ég vinn í happdrætti.
12. júní 2008 kl. 16:52
Frumskilyrði þess að vinna í happdrætti er að taka þátt.
13. júní 2008 kl. 8:49
Ég hef verslað við þessa búð reyndar, harða diska og eitthvað fleira smálegt, mundi það allt í einu og jú mér fannst akkúrat áberandi að það var varla friður til að bíða eftir vörunni fyrir starfsfólki sem vildi endilega aðstoða mig. Ólíkt t.d. í Tölvulistanum þar sem maður truflar starfsmenn með að vera að reka nefið inn um dyrnar.
14. júní 2008 kl. 19:08
Hvenær fannstu þetta út, Sigurður?
Kemur verulega á óvart.
15. júní 2008 kl. 16:30
Frábært að heyra af svona góðri þjónustu
Þetta er bara eins og að leita til þín, hehe
16. júní 2008 kl. 1:58
Ég er alltaf að reka mig á þetta, Óli. Það virðast nefnilega svo margir vinna – nema ég.