Endur fyrir löngu áttu Bretar í stríði við Frakka, einu sinni sem oftar.

Á meðan á einhverjum bardaganum stóð, handsömuðu Frakkarnir höfuðsmann úr breska hernum. Hann var fluttur í höfuðstöðvar Frakkanna og yfirheyrður af hershöfðingja nokkrum.

Franski hershöfðinginn spurði: „Hvers vegna klæðast yfirmenn breska hersins rauðum jökkum? Vitið þið ekki að þið gerið ykkur að mun auðveldari skotmörkum í rauða litnum?„

Höfuðsmaðurinn útskýrði á sinn þurra hátt, að jakkarnir væru rauðir til að blóðið sæist síður ef þeir væru særðir; þannig myndu undirmennirnir sem þeir leiddu áfram síður fyllast skelfingu.

Þess vegna, upp frá þeim degi, klæðast allir yfirmenn franska hersins brúnum buxum.