27. júlí 2008
Við Kolla brugðum undir okkur betri fætinum í gær, og nutum veðurblíðunnar til fullnustu. Raunar ætlaði blíðan að reynast okkur um of á köflum, en það er annað mál! Ég fékk leið frá Tryggva til að setja inn í garminn (GPS tækið), og við fylgdum henni frá Akureyri til Kröflu. Eftir það var garmurinn meira eða minna leystur af hólmi af gamalli kortabók í hanskahólfinu. Síðar fann ég út að mistökin voru vankunnátta mín, og aðeins örlítið stillingaratriði.
Lesa meira af „Fossar og flakk“
Þessi færsla hefur verið lesin 1,129 sinnum
25. júlí 2008
Helstu heimilistækin komu í hús í vikunni; þvottavél, kæli- og frystiskápur, og ryksuga. Ég held, svei mér, að þvottavélin hafi verið látlaust að frá því hún kom í hús. Það er ótrúlegt hve mikill þvottur næst af fótboltafólki.
Góð tilbreyting frá annars ágætum vinnudögum var í gær, en þá fór ég í fyrsta sinn til Búðardals að eiga við tölvur sýslumannsins þar. Útsýnið út Breiðafjörðinn er einstaklega fagurt þarna. Því miður var ég ekki vopnaður myndavél til að fanga dýrðina, en fyrr eða síðar hljóta að gefast önnur tækifæri til slíkra athafna.
Nú erum við skötuhjúin komin til Akureyrar. Það kann að hljóma undarlega, en ég er í raun þakklátur fyrir bakvakt og vinnu um verslunarmannahelgina – því þá vildi ég síst af öllu vera staddur á Akureyri, miðað við fyrri upplifanir á meðan Bragi nokkur Bergmann skipulagði hátíðarhöldin. Þó það sé áreiðanlega ekki hans sök, þá hefur bærinn óneitanlega dregið að sér ómælda athygli vandræðagemsa og ólátabelgja þessa tilteknu helgi. Það verður því kærkomin tilbreyting að láta lítið á sér bera í Breiðholtinu. Hver veit nema borgarumferðin verði líka þolanlegri á meðan!
„Heimili manns er þar sem rassinn hvílir“, sagði einhver, einhvern tímann. Nú, þegar nýtt heimili hefur verið standsett að mestu leyti í borginni, finnst mér svolítið skrýtið að vera þar sem ég áður kallaði heimili mitt á Akureyri. Enn gæfi ég mikið fyrir búsetu norðan heiða – þó ekki hvað sem er! Borgarlífið venst sífellt meira, en er þó alltaf fremur einmanalegt. Akureyri er að sjálfsögðu löngu vaxin upp úr því að alli þekki alla, en þó ekki meira en svo, að maður fer ekki út án þess að rekast á að minnsta kosti eitt kunnuglegt andlit. Slíkt er hending – ámóta og fyrsti vinningur í lottóinu – í borginni. Enda kallaði yfirmaður minn mig „dreifbýlistúttu“ í gær. Þá fylltist ég stolti.
Þessi færsla hefur verið lesin 96 sinnum
22. júlí 2008
It is better for civilization to be going down the drain than to be coming up it.
– Henry Allen
Þessi færsla hefur verið lesin 158 sinnum
17. júlí 2008
Reporter (to Mahatma Gandhi): Mr Gandhi, what do you think of Western Civilization?
Gandhi: I think it would be a good idea.
Þessi færsla hefur verið lesin 172 sinnum
9. júlí 2008
Það hefði seint hvarflað að mér hve hamingjusamur hægt er að vera með algengustu innanstokksmuni; svo sem eldhúsborð, stóla og rúm. Eftir þrjár vikur án þeirra, er það hrein nautn að setjast niður við fábrotið borð, eða leggjast í skikkanlegt rúm í stað vindsængur.
Sendibíllinn kom sem sagt í gærkvöld frá Rúmfatalagernum. Burðurinn upp á þriðju hæð var ágæt áminning um að eitthvað sé reglulegri hreyfingu ábótavant. Þá tók við heilmikið púsl til að koma hlutunum saman. sem var bara nokkuð gaman
Þessi færsla hefur verið lesin 228 sinnum