Það hefði seint hvarflað að mér hve hamingjusamur hægt er að vera með algengustu innanstokksmuni; svo sem eldhúsborð, stóla og rúm. Eftir þrjár vikur án þeirra, er það hrein nautn að setjast niður við fábrotið borð, eða leggjast í skikkanlegt rúm í stað vindsængur.

Sendibíllinn kom sem sagt í gærkvöld frá Rúmfatalagernum. Burðurinn upp á þriðju hæð var ágæt áminning um að eitthvað sé reglulegri hreyfingu ábótavant. Þá tók við heilmikið púsl til að koma hlutunum saman. sem var bara nokkuð gaman ;)