Tilhlökkunin var í lágmarki á föstudaginn, síðasta vinnudaginn fyrir vikulangt sumarfrí. Það er ekkert sérstaklega spennandi að taka sér frí frá daglegum störfum til þess eins að sinna öðrum, nánast daglegum, störfum. Reksturinn norðan heiða gengur þó ágætlega fyrir sig, þó e. t. v. réttara að nefna það góðgerðastarfsemi en rekstur. En það er allt annað mál. ;)

Í gærkvöld bauðst mér óvænt sjóferð. Brá mér til Dalvíkur rétt fyrir 11 í gærkvöld, og sigldi með Oliver og elsta syni hans út á miðjan fjörð eða svo. Renndum aðeins fyrir fisk, en urðum lítils varir. Þrjár hnísur eða önnur smáhveli léku sér í kringum bátinn um stund, en sökum myrkurs var „sýningin„ ekki sérstaklega tilkomumikil. Engu að síður var notalegt að skreppa aðeins út, sjórinn hefur alltaf heillað mig.