Tækni og framhjáhald
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Tölvur & tækniPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Þann 26. ágúst síðastliðinn, birtist grein í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni Tæknin drepur framhjáhald. Þar er m. a. því haldið fram að aldrei hafi verið eins auðvelt fyrir fólk að stofna til náinna kynna við aðra en makann, þá einkum í gegnum vefi á borð við MySpace, Facebook, Tagged og fleiri. Eins væri auðveldara að rekja slík svik en áður.
Ég held þó að lítið hafi breyst í þeim efnum, þrátt fyrir tilkomu þessarra vefa. Í dag er aðeins um aukið úrval að ræða; fleiri hafa aðgang að netinu, MSN er auðveldara í notkun en IRC, og þar fram eftir götunum. Ég er enginn sérfræðingur í að rekja sögu slíkrar notkunar, umfram það sem sjálfgefið er. Vafrakökur segja til dæmis ekki margt, og ómögulegt er að rekja spjallsögu notenda á MSN nema þeir kjósi að vista hana sjálfir. Þar fyrir utan er það ekki á hvers manns færi, að rekja lokaða spjallþræði eða önnur samskipti á netinu.
Því álít ég að tilkoma nýrrar tækni skipti ekki sköpum í þessu samhengi. Ég vildi þó gjarnan heyra álit sem flestra sem bentu til hins gagnstæða.
1. september 2008 kl. 0:06
Í grunninn til er ég alveg sammála þér. Hins vegar ef maður fer að leita og gerir ráðstafanir er hægt að safna meiri gögnum en áður.
Keyloggerar (hardware og software) eru einfaldir í notkun.
Spy-ware er hægt að setja inn á vélar og skila ágætis árangri (hægt að fá í neytendapakningum).
Ef maður vill fylgjast með símanum þá er það hægt með að taka „dömp„:
http://news.cnet.com/8301-1009_3-10028589-83.html
…. endalausir möguleikar.
Ég hef samt tekið þátt í svona rakningum og það er alveg skuggalegt hvað má ná af upplýsingum úr sjálfgefnum skráningum ef maður veit hvar og hvernig á að leita. T.d. hversu margir tæma cache-ið í browsernum? Leitar indexar í Vista og MacOS taka orðið stóran hluta af innihaldi harða disksins, maður veit ekki hversu oft það er hreinsað, page-files í Windows eru ekki dulritaðir og gætu innihaldið eitthvað af upplýsingum…
1. september 2008 kl. 11:24
Hljómar eins og öruggast væri að halda sig við blað, blýant og pappírstætara.
1. september 2008 kl. 23:12
Tja og þá ekki sama hvaða tætari það er
1. september 2008 kl. 23:54
Svo fremi sem hann er ekki með innbyggðum OCR skanna.