11. sept. 2008
Það styttist óðum í Parísarferðina. Brottför kl. 7:40 í fyrramálið. Á fætur klukkan 4, og mæting á völlinn 5:40. Ég er búinn að innrita okkur íflugið á vef Icelandair, sem reyndist afar einfalt. Nú er aðeins spurning hvort allt annað verði eins einfalt.
Það ætlar þó að reynast öllu erfiðara að staðfesta kvöldsiglinguna okkar hjá Viator. Fyrr í vikunni hringdi ég út til að staðfesta ferðina, og það var ekkert mál. Var þó beðinn um að hringja aftur í gær til að endurtaka staðfestinguna. Það dróst til dagsins í dag. Þó fór svo að stúlkan þóttist ekki finna bókunina okkar í kerfinu, og vildi fá miðann sendan með faxi eða bréfpósti. Ég benti henni á að við færum í fyrramálið, og því kæmi bréfpóstur ekki til greina. Þá benti hún mér á að senda þetta frá hótelinu. Vonandi dugir það til.
Að lokum… Góða helgi!
Þessi færsla hefur verið lesin 361 sinni
8. sept. 2008
Símtólið vék naumast frá eyranu meirihluta dagsins, og tölvupóstsamskipti voru í algleymingi. Þó tókst mér að troða tveimur stuttum ferðum inn í daginn, annarsvegar með pappíra í banka, hinsvegar til að fækka hárunum á höfðinu.
Róleg og ágæt helgi að baki, sem einkenndist af látleysi. Við fórum naumast út fyrir hússins dyr, heldur lágum í leti og afslöppun. Það var þó kærkomin tilbreyting þegar Oliver og Sigrún litu inn í kaffi og köku á laugardagskvöldinu. Gestakomur eru fátíðar á þessum bæ.
Í dag hringdi ég í Viator til að staðfesta siglinguna niður Signu. Það reyndist auðvelt, þó mér þætti ensk-franska viðmælandans eilítið torskilin. Mér til furðu var ég þó beðinn um að hringja eftir tvo daga til að staðfesta ferðina aftur.
Þessi færsla hefur verið lesin 33 sinnum
7. sept. 2008
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Í dagsins önn
Prenta
|
Senda færslu
|
3 athugasemdir
Einhver hrekkjalómur hefur sent tengil í síðustu færslu mína inn á afþreyingarvefi B2 og Black. Fyrir vikið er nær stanslaus umferð á vefdagbókina. Nýi þjónninn virðist þó láta sér fátt um finnast, sem er að sjálfsögðu gleðiefni.
Gylfi Ægis hringdi í mig áðan til að bjóða mér eintak af nýja geisladiskinum hans, innihaldið „tuttugu rútulög sem allir þekkja“, eins og hann orðaði það. Sem ég þáði, líkt og aðra diska sem hann hefur gefið út. Annars var spjallið stutt í þetta sinn; kappinn var á kafi í textasmíðum um Breiðavíkurdrengina.
Róleg helgi að baki, fjögurra daga vinnuvika framundan, og flogið til Parísar eldsnemma á föstudagsmorgunn.
Þessi færsla hefur verið lesin 53 sinnum
6. sept. 2008
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir
Glens
Prenta
|
Senda færslu
|
Ein athugasemd

Sámur frændi og olíubirgðirnar
Þessi færsla hefur verið lesin 2,610 sinnum
2. sept. 2008
Í gæt barst mér tilkynning um að ég mætti nálgast böggul á pósthúsinu í Þönglabakka. Við þurftum meðal annars að koma við í Nettó, svo ferðin nýttist ögn betur en ella. Í póstafgreiðslunni borgaði ég tæpar 600 krónur fyrir þunnan og óásjálegan pakka frá Amazon.co.uk. Pakkinn innihélt bók að verðmæti 750 króna, sömu upphæð og sendingarkostnaðurinn var. Þegar allt hafði verið greitt og frágengið, gengum við út í bíl. Pakkinn var rifinn upp af áfergju, og örvæntingarfull leit að innihaldinu hófst. Um tíma héldum við að hann væri tómur. Eftir umtalsvert krafs og klór, komust við að kjarna pakkans; næfurþunnri pappírskilju, ámóta þykkri og tvær dagskrár þær sem bornar eru út vikulega í hús á Akureyri og nágrenni, en þó ekki eins breið.
Ég opnaði bókina fljótlega eftir kvöldmatinn í kvöld, til skemmtunar á meðan ég sinni öðrum verkefnum í tölvunni. Það er erfitt að leggja hana frá sér. Í seilingarfjarlægð frá tölvumúsinni, er hún eiginlega óttaleg truflun. Ætla að reyna að treina mér hana. Ábending Óla var virkilega góð!
Bókin er eftir Ernest Hemingway, og heitir á frummálinu A Moveable Feast.
Þessi færsla hefur verið lesin 21 sinni