Tómur pakki
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 2 athugasemdir
Í gæt barst mér tilkynning um að ég mætti nálgast böggul á pósthúsinu í Þönglabakka. Við þurftum meðal annars að koma við í Nettó, svo ferðin nýttist ögn betur en ella. Í póstafgreiðslunni borgaði ég tæpar 600 krónur fyrir þunnan og óásjálegan pakka frá Amazon.co.uk. Pakkinn innihélt bók að verðmæti 750 króna, sömu upphæð og sendingarkostnaðurinn var. Þegar allt hafði verið greitt og frágengið, gengum við út í bíl. Pakkinn var rifinn upp af áfergju, og örvæntingarfull leit að innihaldinu hófst. Um tíma héldum við að hann væri tómur. Eftir umtalsvert krafs og klór, komust við að kjarna pakkans; næfurþunnri pappírskilju, ámóta þykkri og tvær dagskrár þær sem bornar eru út vikulega í hús á Akureyri og nágrenni, en þó ekki eins breið.
Ég opnaði bókina fljótlega eftir kvöldmatinn í kvöld, til skemmtunar á meðan ég sinni öðrum verkefnum í tölvunni. Það er erfitt að leggja hana frá sér. Í seilingarfjarlægð frá tölvumúsinni, er hún eiginlega óttaleg truflun. Ætla að reyna að treina mér hana. Ábending Óla var virkilega góð!
Bókin er eftir Ernest Hemingway, og heitir á frummálinu A Moveable Feast.
4. september 2008 kl. 18:03
Er þetta glæpasaga ?
4. september 2008 kl. 18:48
Ekki alveg. Í stuttu máli, eru þetta endurminningar Hemingway frá hans yngri árum í París.
Neðst í færslunni er vísun í bókina á vef Amazon, en þar má finna ágæta lýsingu.