7. sept. 2008
Einhver hrekkjalómur hefur sent tengil í síðustu færslu mína inn á afþreyingarvefi B2 og Black. Fyrir vikið er nær stanslaus umferð á vefdagbókina. Nýi þjónninn virðist þó láta sér fátt um finnast, sem er að sjálfsögðu gleðiefni.
Gylfi Ægis hringdi í mig áðan til að bjóða mér eintak af nýja geisladiskinum hans, innihaldið „tuttugu rútulög sem allir þekkja„, eins og hann orðaði það. Sem ég þáði, líkt og aðra diska sem hann hefur gefið út. Annars var spjallið stutt í þetta sinn; kappinn var á kafi í textasmíðum um Breiðavíkurdrengina.
Róleg helgi að baki, fjögurra daga vinnuvika framundan, og flogið til Parísar eldsnemma á föstudagsmorgunn.
Þessi færsla hefur verið lesin 53 sinnum
7. september 2008 kl. 16:43
Hahaha… Mín vinnuvika er bara 3 dagar
7. september 2008 kl. 16:47
Þú ert líka svindlari.
7. september 2008 kl. 17:05
hahahha … nei ég er bara svo heppin að fá ein frídag í viku og það er á miðvikudaginn
ahhahah …:p gott á þig