8. sept. 2008
Annasamur dagur
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | Engar athugasemdir
Símtólið vék naumast frá eyranu meirihluta dagsins, og tölvupóstsamskipti voru í algleymingi. Þó tókst mér að troða tveimur stuttum ferðum inn í daginn, annarsvegar með pappíra í banka, hinsvegar til að fækka hárunum á höfðinu.
Róleg og ágæt helgi að baki, sem einkenndist af látleysi. Við fórum naumast út fyrir hússins dyr, heldur lágum í leti og afslöppun. Það var þó kærkomin tilbreyting þegar Oliver og Sigrún litu inn í kaffi og köku á laugardagskvöldinu. Gestakomur eru fátíðar á þessum bæ.
Í dag hringdi ég í Viator til að staðfesta siglinguna niður Signu. Það reyndist auðvelt, þó mér þætti ensk-franska viðmælandans eilítið torskilin. Mér til furðu var ég þó beðinn um að hringja eftir tvo daga til að staðfesta ferðina aftur.
Þessi færsla hefur verið lesin 34 sinnum