Allt í plati
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Engin færsla frá því fyrir Parísarferðina í september. Skammarleg frammistaða, án þess að ég hafi fleiri orð um það. Fyrr eða síðar hripa ég ferðasöguna niður. Eins mun ég eflaust reyna að skrifa eitthvað um haustferð Þjóðskrár.
Síðustu vikur hafa þó verið með óvenjulegra móti, einkum í vinnunni. Mikil skipulags- og þróunarvinna. Ég er enn að reyna að átta mig á því hvort ég vilji virkilega ganga funda- og skipulagsleiðina. Mín reynsla er a. m. k. sú að fundir eru hentugir fyrir blundi; sem og að ákveða hvar og hvenær næst skuli funda.
Þessi færsla er ekki síður til þess ætluð að minna mig á að hrista af mér bloggslenið, en að láta þá fáu sem ennþá ramba hingað inn með óreglulegu millibili, vita að ég dragi enn andann (og blási frá mér, ef út í það er farið).
31. október 2008 kl. 4:54
Gaman að sjá að þú ert á lífi.
Nú hressir þú þig upp og bloggar af tvöföldu afli.
31. október 2008 kl. 8:40
Ég var næstum farinn að skima eftir þér í minningargreinum Moggans; þessi langa fjarvera var orðin svo einkennileg!
En gott að sjá að þú ert kominn aftur í gang
31. október 2008 kl. 11:24
Ohh, ætli ég hefði ekki orðið fyrstur manna til að blogga um andlát mitt…
Þakka ykkur fyrir athugasemdirnar; ugglaust munu þær nægja til að stugga nægilega við mér!