Ég er ekki dauður úr öllum æðum enn! Ég hef verið – og er enn – umvafinn allskyns tímaþjófum; sem ég kenni umhugsunarlaust um fátíð skrif í dagbókina. Biðst jafnframt velvirðingar á því; hingað reka kærir vinir reglulega inn nefið, þrátt fyrir framtaksleysi mitt.

Engin loforð um nokkurn skapaðan hlut að svo stöddu; sjáið best hvernig fer fyrir efndum stjórnmálaflokkanna. ;)