4. jan. 2009
Gleðilegt ár!
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 6 athugasemdir
Ég er ekki dauður úr öllum æðum enn! Ég hef verið – og er enn – umvafinn allskyns tímaþjófum; sem ég kenni umhugsunarlaust um fátíð skrif í dagbókina. Biðst jafnframt velvirðingar á því; hingað reka kærir vinir reglulega inn nefið, þrátt fyrir framtaksleysi mitt.
Engin loforð um nokkurn skapaðan hlut að svo stöddu; sjáið best hvernig fer fyrir efndum stjórnmálaflokkanna.
Þessi færsla hefur verið lesin 260 sinnum
5. janúar 2009 kl. 8:17
Gott að sjá að líf er í sumum æðunum.
Óska þér gleðilegs árs og þess að þú
minnir á þig reglulega hér.
Bestu kveðjur.
14. janúar 2009 kl. 18:27
þú verður alveg að fara að vera duglegri við það að blogga
það er alveg hætt að vera nokkrir póstar til að kíkja á þegar ég kem hingað =)
20. janúar 2009 kl. 22:58
skammastín
5. febrúar 2009 kl. 9:34
Fjórði janúar — fjórði febrúar.
Væri nokkuð ofrausn að senda eins og þrjú fjögur orð? Svona upp á gamlan kunningsskap.
4. mars 2009 kl. 20:38
Fjórði janúar, fjórði febrúar, fjórði mars.
Ég velti því fyrir mér hvort af tvennu hefði hent þig og hindri ritun á bloggið.
Í fyrsta lagi, sálin hefði orðið eftir í París, í öðru lagi, þú hefði gift þig.
Hvort af þessu tvennu veldur tregðu þinni, átta ég mig ekki á, en finnst að þú mættir senda svona eina og eina kveðju til okkar hinna.
Annars, bestu kveðjur.
Óli Ág.
4. mars 2009 kl. 21:44
Þakka þér fyrir kveðjurnar, Óli. Sálin er á sínum stað, og enn er ég ókvæntur. Ég setti inn stutta færslu, rétt til að sýna fram á að ég sé enn við ágæta heilsu.