4. mars 2009
Lífsmark
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 3 athugasemdir
Ótrúlegt hve tíminn líður hratt! Ég hef ekkert skrifað hér svo mánuðum skiptir, og ef Óli hefði ekki verið svo vænn að minna mig á, hefðu eflaust liðið einhverjir til viðbótar.
Árshátíð Stjórnarráðsins var í febrúar, mikil veisla og skemmtileg. Heimförin var þó ekki eins ánægjuleg; varð fótaskortur á svelli og braut á mér hægri höndina (ekki handlegginn). Losnaði úr viðjum gipsins á mánudaginn og settur í spelku í staðinn. Hún er ekki til neinna stórræða enn, svo þessi færsla verður í styttri kantinum.
Í gær undirrituðum við hjúin heilmarga pappíra (sem mér fórst ekki sérlega vel úr hendi!). Nú er íbúðin í Fífuselinu okkar eign, eða svoleiðis. Við eigum náttúrlega bara skuldirnar, eins og svo margir aðrir.
Þessi færsla hefur verið lesin 139 sinnum
7. mars 2009 kl. 8:30
Slæmt með brotna höndina. Gott að lífið heldur áfram. Gaman að sjá þig aftur. Kveðja.
16. mars 2009 kl. 7:41
Til hamingju með skuldirnar
4. apríl 2009 kl. 9:12
Fjórði janúar – fjórði febrúar – fjórði mars – fjórði apríl.
Bara svona rétt að minna á okkur lesendurna.
Við erum hér enn. Hvar ert þú?