Eftir vinnu síðustu daga er ljúft að vera kominn í frí. Í gærkvöld komum við til Akureyrar. Það vakti athygli mína þegar nær dró bæjarmörkunum, hve lítill snjór er hérna miðað við fréttir af Norðurlandinu upp á síðkastið. Glöggt mátti sjá strá og blómstur fyrra sumars stingast upp úr snjónum á túnunum. Ekki skemmdu móttökurnar fyrir í morgun; hér skín sólin og gyllir snæviþakin fjöllin. Logn og blíða. Vonandi endist það þar til við förum aftur suður á föstudaginn langa.