4. apríl 2009
Páskafrí
Skrifað af Sigurður Axel Hannesson undir Í dagsins önnPrenta | Senda færslu | 4 athugasemdir
Eftir vinnu síðustu daga er ljúft að vera kominn í frí. Í gærkvöld komum við til Akureyrar. Það vakti athygli mína þegar nær dró bæjarmörkunum, hve lítill snjór er hérna miðað við fréttir af Norðurlandinu upp á síðkastið. Glöggt mátti sjá strá og blómstur fyrra sumars stingast upp úr snjónum á túnunum. Ekki skemmdu móttökurnar fyrir í morgun; hér skín sólin og gyllir snæviþakin fjöllin. Logn og blíða. Vonandi endist það þar til við förum aftur suður á föstudaginn langa.
Þessi færsla hefur verið lesin 188 sinnum
5. apríl 2009 kl. 8:44
Njótið páskafrísins á meðal fólksins ykkar og í umhverfi ykkar.
Bestu páskakveðjur.
14. apríl 2009 kl. 23:45
Neihh.. sjaldséðir eru hvítir….. Er næsta bloggfærsla þá eftir tvo mánuði? hahahahaha
5. maí 2009 kl. 11:28
Ætlaði í gær að minna á okkur hin. 4. maí.
Kveðja.
13. maí 2009 kl. 13:25
Til hamingju með gærdaginn!
Og farðu nú að blogga